Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Þetta er átakanlegt

Sorg er það eina sem mér dettur í hug. Það er sorglegt að svo lítið hefur verið gert til þess að koma í veg fyrir þessi slys. Það er sorglegt að enn er lítið, allt of lítið að gert.

Níuhundruðogsextán á fjörtíu árum. Það eru rétt um tuttuguogþrír, að meðaltali, á hverju ári.

Svo má velta fyrir sér þessari setningu í lok fréttar þar sem segir: „ táknmynd þeirra fórna sem íslenska þjóðin hefur fært á vegum landsins.“ Hér áður fyrr færðu menn fórnir, færðu guðunum fórnir, til þess að fá eitthvað í staðin. Höfum við virkilega verið að færa guðunum okkar fórnir? Eða höfum við verið kærulaus og látið þetta bara viðgangast.

Og gerum enn, þó stór orð falli reglulega frá þeim sem eru ábyrgir hverju sinni.

Í morgun kom fram í frétt að efla eigi eftirlit á vegi 1 í sumar og fram á haust. Eftirlitinu verður beint að svo kölluðum svörtum blettum á veginum en það eru þeir staðir þar sem slys hafa verið tíð. Vegagerðin veit hvar þessir blettir eru en samkvæmt fréttinni má ekki láta almenning vita hvar þeir eru. Það er sorglegt.


mbl.is 916 látnir í umferðinni á 40 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er alvarlegasta brotið hér?

Í mínu huga er það það sem kemur í lokasetningu fréttarinnar.

Sú skoðun felur ekki í sér réttlætingu á hinum brotunum. Halo


mbl.is 14 ára undir stýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„ Af augljósum ástæðum“?????

Hverjar eru þessar „augljósu“ ástæður?
mbl.is Eftirlit með „svörtum blettum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

17.000 sinnum 17 m3

Sautjánþúsund ferðir með 17 rúmmetra af jarðvegi um Sæbrautina. Hvað vegur einn rúmmetri af jarðvegi? 3 tonn? Er verið að flytja 50 tonn í hverri ferð um Sæbrautina? Slíkri flutningar hljóta að brjóta niður undirlega brautarinnar, gera hana óslétta sem aftur skapar hættu. Hver borgar niðurbrot Sæbrautarinnar? Talið er að ein svona ferð með 50 tonn, slíti vegi á við 40.000 fólksbíla.
mbl.is Þurfa að fara rúmlega 17 þúsund ferðir með jarðveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður dagsins

Reykspúandi bifreið sem ók þeim frá kirkjunni, þvílíkt klúður.
mbl.is Danir fengu nýja prinsessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttlæti???

Borga knattspyrnumenn 1000 krónur fyrir að fá að vera með á æfingu? Hverri æfingu? Borga frjálsíþróttamenn 1000 krónur fyrir aðstöðuna í hvert sinn sem þeir æfa?
mbl.is Fá að hjóla í Þykkvabæjarfjöru gegn þúsund kr. gjaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Risafrétt?

Ætli fréttamönnum og ritstjóra fréttastofu Stöðvar 2 finnist það risafrétt hver ferðakostnaður er hjá ríkinu og borginni?
Það vottar fyrir einhverskonar vandlætingu í fyrstu tveimur fréttunum.

Gott hjá lögreglunni

Það er gott að fá þessar fréttir. Þær ættu að vera okkur víti til varnaðar.
mbl.is Bílstjórar sofnuðu við akstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

8000 keppendur

Í Glitnismaraþoni í Kaupmannahöfn. Það eru svolítið margir. Sjá hér

Undarlegt

Ég hef enga samúð með drukknum ökumönnum, en var þessi að aka bíl? Bíl sem var ekki hægt að aka.
mbl.is Sat fullur undir stýri meðan bíll var dreginn á land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband