Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Allt er nú til í íslenzku

Rigningar standa yfir í Mið-Evrópu. Því er verið að flækja málið okkar svona? Og svo er safnið sjálft búið að fjarlægja verk sín úr kjallaranum. Þetta er dulúðugt. LIfandi listasafn.
mbl.is Flóð í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki trúverðugt!

Ekki ef maður hefur lesið þetta

 


mbl.is Fry: Ræddum við FIA af fullum heilindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið hefur fé betra.

Það væri hreinsun ef þessi lið færu úr Formúlu 1. Þá fengi íþróttin loks að blómstra. Fréttaritari mbl.is mætti líka yfirgefa svæðið. Það er til skammar hvernig fréttafluttningur mbl.is hefur verið litaður í þessu máli.
mbl.is Mosley segist sáttfús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrettán prósent fækkun slasaðra er talsvert!

Merkileg er þó sú ályktun sem Einar dregur af þessu. Hann segir: „Umferðarhraðinn hefur minnkað auk þess sem fólk hefur meiri tíma núna í efnahagslægðinni. Það er meiri streita í umferðinni þegar uppgangur er í þjóðfélaginu. Núna þarf fólk ekki að vera komið á fund fyrir ákveðinn tíma og keyrir ekki eins og brjálæðingar,“

Það var sem sagt fólk á leið á tímasetta fundi sem voru sökudólgarnir. Því fólki lá svo mikið á að það keyrði eins og brjálæðingar. Skrítið að brjálæðingarnir sem óku svona hratt voru þó mest megnis að valda minniháttar óhöppum.

Forstöðumaður Forvarnarhússins þarf eiginlega að útskýra með hvaða aðferðum hann kemst að þessari niðurstöðu. 


mbl.is Tjón á bílum um 40% færri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veginn niður ...

... ekki fólkið. Það þarf ekki að vera dýrt að lækka vegstæðið um 4 til 6 metra og byggja svo yfir það.
mbl.is Byrjað að undirbúa undirgöng í Grundarhverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í stokk með veginn þarna.

Lækka ætti núverandi vegstæði um 4 til 6 metra og byggja yfir það. Það ætti ekki að vera dýrt en mun bæta umhverfið verulega.
mbl.is Krefjast úrbóta á Kjalarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir 7 ár = 900 milljarðar!

Ef gengið er út frá að eignir dugi fyrir 95% af 650 milljörðunum þá þurfum við að borga 300 milljarða. Það er ekki ásættanleg niðurstaða. Þessir vextir eru hreinræktuð rányrkja.
mbl.is Engin Icesave-greiðsla í 7 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki vegrið, manndrápsgirðing.

Það ætti að vera vegrið þarna. Þess í stað er þarna girðing sem er í raun manndrápsgirðing. Tindar girðingarinnar hafa stungist í gegnum hurðir bíla og stórslasað fólk í bílunum. Það er ótrúlegt að menn skuli aftur og aftur lagfæra þetta manndrápstæki sem er við Miklubrautina allt austur að Elliðaá.


mbl.is Óku á vegrið og gengu burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ónákvæmni Mbl.is

Ef vélin var í þriggja tíma fjarlægð frá París, þegar samband rofnaði, þá hefur hún verið komin norður fyrir Kanaríeyjar. Hún getur því varla verið úti fyrir strönd Brasilíu.
mbl.is Farþegaflugvélar saknað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lægri vextir, styttri kreppa!

Vextir á húsnæðislánum í Danmörku verða lækkaðir svo Danir munu spara 7.000.000.000 danskar krónur á ári. Sjö milljarðar danskra króna munu því eiga greiða leið í verslun og viðskipti. Það þýðir að kreppan staldrar styttra við en ef ekki. Vextirnir munu lækka úr 5,2% í 2,4%.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband