Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010

þarf ekki 9 mörk?

Rússalnd með +4 og við með -13 = 17 mörk á milli.
mbl.is Kraftaverk óskast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei takk

Það er marg búið að skoða þetta. Bæði á Íslandi og líka á Norðurlöndunum sem heild. Niðurstaðan er ótvíræð. Þessu hefur verið hafnað því þetta mun leiða til slysa. Það er ágæt lausn á þessu á Íslandi. Látum hana duga.

ps. er þessir þingmenn ekki búnir að kynna sér fyrri rök? Ef svo er hvað hafa þeir fyrir sér um að þau gildi ekki lengur?


mbl.is Frumvarp um hægri beygju á rauðu ljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn rúmlega 300% munur.

Látum ekki blekkjast. Þegar vextir eru komnir í 2% þá verða þeir samt 100% hærri en á meginlandinu. Helsta vandamál íslenzkra heimila eru brjálæðislega háir vextir. Fimm prósent vextir ofan á verðtryggt er náttúrulega bara rányrkja. Líka 4%. Allt umfram 2% á verðtryggðum lánum er okur. Verst hvað fáir eru tilbúnir til að viðurkenna það.
mbl.is „Mjög myndarlegt skref"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju

Stjórnvöld á Íslandi hefðu ekki leyft þessa stafssemi þar. Smíði hernaðartóla. Eða eru þetta varnartól?

Doldið súrt að sjá þessa starfssemi farna úr landi. Íslensk þróun, íslenskt hugvit. Norskar tekjur.


mbl.is Samið um smíði fyrir norska og sænska herinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10.000.000 pr starfsmann

Á sama tíma og önnur fyrirtæki rétt skrimta þá stela bankarnir peningum. Það er ekki í lagi að fyrirtæki á Íslandi græði milljón á mánuði á hvern starfsmann þess. Því lætur almenningur þetta viðgangast? Eru blaðamenn alveg blindir þegar kemur að svona rugli? Eða finnst fólki þetta bara hið besta mál? Það er verið að arðræna viðskiptamenn bankanna. Það er verið að arðræna sparifjáreigendur.
mbl.is Hafa hagnast um 35 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband