Hvað er áhættuvarnaakstur?

Spyr sá sem ekki veit.

ps. Er Sjóvá að afhenda sjálfum sér búnað?


mbl.is Færanlegt forvarnarhús bætir ökukennslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jeremy Clarkson kom fyrst til Íslands 1994

Hann vann þá með Landsambandi Íslenskra Akstursfélaga, LÍA, og útkomuna má sjá hér
mbl.is Top Gear hyggst skoða eldgosið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árangur eða tilviljun?

Hvað hefur verið gert til þess að færri slys verði? Gott væri að sjá skýrslu um árangur af slíku. Þessi „fækkun“ sem svo er kölluð er inna þeirra sveiflna sem eru í þessum tölum.

ps. slysum fækkar ekki þó færri slys verði miðað við tiltekin tímabil.


mbl.is Alvarlegum slysum fækkar á milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað? Þarf þá fyrst að hækka verð til almennings?

Svo það verði réttlætanlegt að stórnotendur greiði eðlilegt verð miðað við aðra stórnotendur í Evrópu?
mbl.is Segir stóriðjuna borga meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegur þessi sýslumaður ...

... það er eins og honum finnist þetta gaman. Það er augljóst að hann hefur ekki snefil af væntumþykju með íbúum sýlsunnar því þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann lætur ljós sitt skína við svona aðstæður.
mbl.is Hrina uppboða á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hver er hin raunverulega ástæða fyrir þessum árekstri?

Hvað gerði það að verkum að ökumaður sjúkrabílsins sá ekki þann sem ók inn á gatnamótin? Varla getur það hafa verið hraðinn. Hvað skyggði á? Hvers vegna sá hinn ökumaðurinn ekki sjúkrabílinn? Það er ekki hægt að útskýra þetta atvik með því að sjúkrabílnum hafi verið ekið of hratt. 

Vissulega er ljóst að ökumaður sjúkrabílsins sýndi ekki næga aðgæslu, en hvers vegna? Í hvaða formi var þetta aðgæsluleysi? Það vantar eitthvað hér. 


mbl.is Sjúkrabíllinn ók of hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólympíuhreyfingin á flótta?

Í mjög mörgum greinum á vetrarólympíuleikum snýst keppnin um að ná sem mestum hraða og halda honum sem lengst. Ábyrgð framkvæmdaraðila er að ekki hljótist slys af þó keppanda mistakist í tilraun sinni. Að kenna keppandanum um í þessu tilfelli er flótti frá ábyrgð.

Vonandi huga íslenskir keppnishaldarar að öryggismálum í keppnum hér heima.


mbl.is Sleðabrautin sögð í lagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju fundur með hestamönnum?

Eru það kannski hestamenn sem láta sér ekki nægja að spæna upp landið með hófum hestanna heldur líka á mótorhjólum?
mbl.is Fjallað um akstur fjórhjóla í fjörunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á mbl.is við með þessari fyrirsögn?

Er enn eina ferðina verið að slúðra í F1 „fréttum“ hér á mbl.is? Þetta er alveg með ólíkindum bullið alltaf hreint þegar kemur að F1.
mbl.is Todt hreinsar til hjá FIA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgar sig væntanlega á einu ári

Vegrið á þessum fjölförnu vegum munu sennilega koma í veg fyrir að minnsta kosti tvö alvarleg slys á hverju ári. Hvert alvarlegt slys kostar ekki minna en 250 milljónir. Það ætti því að vera réttlætanlegt að gera þetta og það strax.

Það er hins vegar umhugsunar efni að í hvert sinn sem gagnrýni beinist að samgönguráðuneytinu þá eru menn kallaðir á teppi og múlbundnir. Í gegnum tíðina hef ég oft og margsinnis fengið að heyra að ég mætti ekki segja hvaðan ég hef fengið upplýsingar um ýmislegt sem varðar umferðaröryggi. Verkfræðingar og verkfræðistofur eiga það á hættu að missa verkefni ef þeir gagnrýna. Það er spilling í þessum málum á Íslandi og hefur verið lengi. Nýjar upplýsingar benda til að það er þannig enn.


mbl.is Sameiginlegt markmið allra að fækka slysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband