Hvað á Børsen við með þessari samlíkingu?

Rauði þráðurinn í bókinni er mannsal, misþyrming á ungum konum, morð ekki bara eitt heldur mörg, nauðganir og almenn fyrirlitning á konum. Hvað er líkt með glæpum í sögubókinni og fyrirtækjum sem gengu kaupum og sölu?

Ég mótmæli fyrir hönd Íslendinga. Mótmæli því að líkja einstökum eða mörgum Íslendingum við morðingja.


mbl.is Íslenski loftkastalinn sem sprakk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjartsýni Einar, kennir dómurum um enn og aftur

Stjarnan vann og Einar kvartar yfir dómurum samkvæmt Vísi.is.
Það eru sömu viðbrögð og áður. Áfram Stjarnan.
mbl.is Íslandsmeistarar Stjörnunnar sóttu sigur í Safamýrina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki krapinu um að kenna

Það er rangt mat hjá lögreglunni að það hafi verið krapið sem hægt og rólega færði bílana út fyrir veg. Svona lagað er eingöngu ökumönnunum að kenna. Þeir taka ekki mið af aðstæðum. Það er ekki hægt að kenna veðrinu, rigningunni, sólinni, snjónum, vindinum eða krapinu um.
mbl.is Útaf í Þrengslunum vegna krapa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegur bjartsýniskall þessi Einar

En Fram á bara ekki séns. :)
mbl.is Fram setur stefnuna á meistaratitilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnamyndir og fyrirmyndir

screen_shot_2009-09-29_at_10_05_23_am.pngÍ Morgunblaðinu í dag fylgir þessi mynd með fréttinni.

Hjálmlaus á mótorhjóli á fullri ferð er jafn heimskulegt og að vera reykjandi í barnamynd. Jafn heimskulegt er líka þegar bílbelti eru ekki notuð.

 Því geta framleiðendur ekki haft svona smáhluti í lagi? 


mbl.is Flestir sáu Algjöran Sveppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér má spara

Þessi slys, slys í heimahúsum, íþróttaslys og umferðarslys kosta í það minnsta 100 milljarða á hverju ári. Það er því eftir talsverðu að slægjast með því að fækka þessum slysum.

Ef við setjum 5 milljarða í forvarnir, til dæmis áróður, þá náum við 15 milljarða sparnaði. Í það minnsta. Slys gerast ekki af sjálfum sér. Með hegðun má fækka þessum slysum umtalsvert.

Hvað getur þú gert? Gert þitt heimili slysalaust?

Holl lesning


mbl.is Tæplega 7000 vinnuslys í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er þetta gott.

Smátt og smátt losnar Formúlan við sóðana. Þrír farnir á þessu ári. Vonandi hætta menn að svindla í þessar íþrótt. Kannski brást innra eftirlit í fyrra, en það þarf líka að vera hægt að treysta fólki.

ps vonandi losnar Formúlan líka við blaðamenn sem hafa dýrkað þessa svindlara.


mbl.is Skilorðsbundið keppnisbann Renault
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri alvarlega slasaðir?

Á vef Umferðarstofu er að finna slysatölur. Þær nýjustu ná þó aðeins yfir fyrstu 5 mánuði 2009.

 Þar kemur fram að sjö höfðu látist á fyrstu 5 mánuðum ársins. Það er sami fjöldi og árið 2008. Alvarlega slasaðir ári 2009, fyrstu 5 mánuði, voru 71. Árið 2008 voru það 63. 

 Spennum beltin og látum bílinn vera eftir einn. 


mbl.is Umferðarslysum fækkar í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleit hugmynd

Sú hugmynd umhverfis og samgönguráðs Reykjavíkur að ökumenn sem eru einir í bíl verður bannað að aka um hinn nýja Hlíðarfót á álagstímum, er slæm. Það er líka slæmt að ekki verður hringtorg við Loftleiðahótel.

 Sá sem kemur vestan úr bæ og er einn í bíl þarf að aka yfir gatnamót við BSÍ (í stað þess að beygja til hægri) aka upp á Bústaðaveg til hægri og svo aftur til hægri inn á Flugvallarveg. Síðan kemur það versta og það er vinstri beygja við Loftleiðahótel. 

Í stað þess að fara tvisvar til hægri og komast þannig á leiðarenda við HR, þá þarf viðkomandi að aka yfir ein gatnamót (ljósastýrð) beygja tvisvar til hægri í báðum tilfellum á ljósastýrðum gatnamótum og síðan ein sinni til vinstri (í veg fyrir aðra umferð).

Það er vondur kostur. 


Ekki eitur

Súrál er ekki eitrað. Það er hættulaust með öllu. Það hefur þó hörku á við demant og því væri ráðlegast að skola það af bílum og öðrum lökkuðum hlutum, ekki strjúka það af.

Viðbrögð Ernu eru brosleg. Heimalærdómur er af hinu góða.


mbl.is Súrál fauk um álverssvæðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband