Óreglulegar slaufur
18.6.2007 | 10:37
Vonandi eru enginn slasaður. Slaufuverk á þessum gatnamótum er stórhættulegt. Þær þarf að lagfæra. Það eru mörg dæmi þess að óreglulegir radíusar í þessum slaufum koma mönnum í opna skjöldu. Það er löngu tímabært að vegagerðin lagfæri þær.
Umferðarslys á Sæbraut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér og svona slaufur eru víðar á höfuðborgarsvæðinu. Ber þar helst að nefna slaufurnar við Hringbraut og Snorrabraut.
Eru til einhver lög eða vinnureglur um þessa hluti?
Einar Örn Ólafsson (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 10:48
þarna eru menn að keyra of hratt, ekki er hægt að kenna mannvirkjunum um aulaskap mannfólksins
ji (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 10:59
Rangt hönnuð mannvirki eiga því miður sök á fjölda óhappa. Það er í dag viðurkennt víða um heim. Margar þjóðir í Evrópu vinna nú að lagfæringum á slíkum mannvirkjum þar á meðal Íslendingar.
Birgir Þór Bragason, 18.6.2007 kl. 11:14
Það eru oft stórir trukkar að lenda í svona slysum/óhöppum með atvinnubílstjóra undir stýri sem eru alveg örugglega ekki að aka þarna um í fyrsta skipti, þannig að þeir eiga að vita hverju þeir eiga vona á.
kv
Finnur Ólafsson Thorlacius, 18.6.2007 kl. 11:32
Umferðarmannvirki eiga ekki að vera þannig að ökumenn þurfi að þekkja aðstæður til þess að komast klakklaust í gegnum. Þvert á móti eiga slík mannvirki að vera þannig að þeir sem ekkert þekkja til komist leiðar sinnar.
Birgir Þór Bragason, 18.6.2007 kl. 11:57
Hárrétt hjá þér Birgir Þór, svona breytilegir radíusar koma virkilega aftan að mönnum (ökumönnum) sem hafa kannski leyft sér að fara á aðeins meiri hraða í beygjuna en hún er hugsuð fyrir. Hvað skyldi t.d. vera langt í að við fáum álíka óhapp/slys á aðreinarbeygjunni af Suðurlandsvegi inn á Vesturlandsveginn í átt til borgarinnar -og er það þó alveg ný hönnun!
Jón Baldur Þobjörnsson (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 13:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.