Tími til kominn að þetta verði skoðað rækilega
14.3.2008 | 13:28
Í gær voru tölur hins opinbera kynntar. Þar kom fram að á Íslandi öllu urðu 1.132 slys með meiðslum í umferðinni hér á landi. Í þeim slösuðust 1.658 manns.
Í skýrslu Einars hjá Sjóvá kemur hins vegar fram að á höfuðborgarsvæðinu urðu 13.700 óhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu árið 2007 og í þeim slösuðust 1800 manns.
Hér er umtalsverður munur á tölum um slasaða.
Miðað við það sem sá er hér skrifar hefur lesið undanfarin 10 ár slasast tvöfalt fleiri á hverju ári en opinberar tölur segja til um. Dagurinn í dag og dagurinn í gær staðfesta það nú eiginlega.
![]() |
Miklabrautin tjónamesta gatan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auglýsing á undan og eftir, öryggi í flugi
13.3.2008 | 22:26
Umferðarstofa, eins og umferðarráð hér áður, reynir að láta líta út fyrir að slysum hafi fækkað. Vísað er í tölur og sagt að í raun hafi slysum fækkað miðað við ...... Bull og vitleysa. Þrátt fyrir að bílar í dag verndi fólkið miklu betur en fyrir 10 árum stækkar tollurinn með hverju ári. Það er óásættanlegt. Miðað við hvað bílarnir eru miklu betri þá er þessi útkoma í raun stóralvarleg og er áfellisdómur á árangur okkar í öryggismálum í umferð á vegum.
Við fljúgum oftar og lengra en áður með enn meira öryggi en áður. Þannig á það líka að vera.
Það er ekkert sem segir að með fleiri bílum á götunum eigi slysum að fjölga. Það er því ekki hægt að grípa í þær tölur og fá út að slysum hafi í raun fækkað.
ps, það er asnalegt að sjá mótorhjólamanninn hjálmlausann í þessari frétt.
![]() |
Fleiri alvarleg umferðarslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dapurlegt
13.3.2008 | 15:30
![]() |
Tvöföldun hefst 2009 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stórfurðulegt
13.3.2008 | 09:28
Á margan hátt.
Ekki virðist hægt að hefja vegabætur á suðvesturlandi nema eitthvað verði líka gert í nágreni Akureyrar á sama tíma.
Það er þó enn furðulegra að lagfæringar á veginum á milli Reykjavíkur og Selfoss verða fyrst á miðri leið en ekki næst borginni og númer tvö næst Selfossi. Ástandið á þessum vegi frá Vesturlandsvegi að Lögbergsbrekku er til háborinnar skammar fyrir Vegagerðina og Samgönguráðuneytið. Svo er einnig hvað varðar veginn á milli Hveragerðis og Selfoss.
![]() |
Ný göng og tvöföldun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Feluleikurinn loks viðurkenndur
12.3.2008 | 08:09
![]() |
Ómerkt bifreið mælir hraðakstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jæja, kominn tími á að hætta að blogga hér
7.2.2008 | 20:49
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Áhersla nýs meirihluta
22.1.2008 | 15:01
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott
10.12.2007 | 12:51
Það er gott að öryggi gangandi vegfarenda í Reykjavík er skárra en áður. Því miður á þessi skýrsla bara við um gangandi vegfarendur og bara í Reykjavík.
Aðrir vegfarendur er enn í sömu hættu og áður og jafnvel meiri.
Banaslysum hefur fjölgað og alvarlegum slysum hefur fjölgað þegar horft er til heildarinnar. Það þarf að lesa svona fréttir með varúð, því þessi frétt fjallar ekki um heildin, aðeins um lítin og sennilega minnkandi hluta umferðar.
Það væri hins vegar gott ef þeir sem ábyrgðina bera, skoði árangur í þessum málaflokki, og hvort ekki megi yfirfæra aðferðina á aðrar tegundir umferðar í Reykjavík og víðar.
![]() |
Alvarlegum slysum fækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Helmingur banaslysa af þeirra völdum
8.12.2007 | 11:16
Það kemur fram á blaðsíðu 2 í Morgunblaðinu í dag að helming banaslysa árin 2005 og 2006 í umferðinni megi rekja til ölvunaraksturs.
Því eru svona fréttir eintómur hryllingur í mínum huga. Ömurlegt.
![]() |
Ölvaðir bílstjórar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aflmiklir bílar og nýliðar
6.12.2007 | 08:42
Hvaða rugl er það að nýliðar í umferðinni fái að aka svona aflmiklum bíl. Engum í fluginu dettur það í hug að nýliði þar fái F15 orustuþotu til að æfa sig á, með orðunum, farðu varlega!
Ég er fylgjandi lækkun aldurs fyrir ökuleyfi en því verður að fylgja að skel hæfi kjafti. Afl, þyngd og stærð tækis á að takmarka fyrstu árin. Ég þekki einn fjögurra ára sem á rafbíl. Bíllinn hæfir honum og umhverfið sem hann má vera á bílnum, líka. Hann er ekki hættulegur á þessum bíl.
Ég skora á þingmenn að skoða mögulegar breytingar í þessa átt, helst strax.
![]() |
Sautján ára á 212 kílómetra hraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)