Hvaðan eru þessar fréttir af danska liðinu?

Því fer fjarri að danir hafi ráðið lofum og lögum í leik þeirra við ungverja. Danir eiga nú bara að vera sáttir við sitt stig, eftir arfa slakan leik.

 

DR segir: Der var ikke mange plusser i bogen til landstræner Morten Olsens mandskab, der bestemt ikke var oppe mod en skræmmende modstander, men alligevel havde store problemer med at skabe chancer. Og i forsvaret var der flere kiks, som de ret harmløse værter dog ikke fik udnyttet 

OG TV2 segir: Hvor Danmark spillede lige op med Ungarn i første halvleg, var det ungarerne, der dominerende i den sidste halvdel af kampen. 


mbl.is Fleiri fúlir en Norðmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá tvo leiki í kvöld.

Noregur - Ísland og Ungverjaland - Danmörk.

Þetta voru tveir frekar daprir leikir. Leiðilegir eiginlega. Fjögur lið töpuðu samtals 8 stigum.  


Rukka sérstaklega

Það væri réttast að rukka fyrirtækið sérstaklega fyrir afnot af vegakerfinu vegna þessara fluttninga. Það ætti að gera í samræmi við þyngd gámanna.
mbl.is Ekið norður með verksmiðju í 60 gámum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oggupínusmávirkjun

„Í Bjallavirkjun yrðu framleidd árlega um 46 megavött af raforku“ segir í fréttinni. Hvað ætli fréttamaðurinn eigi við?
mbl.is Ný virkjun í undirbúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðferði stjórnmálamanna

Hvað veldur því að stjórnmálamenn telja sig þurfa að setja sérstakar reglur um eigið siðferði? Er þeirra siðferði eitthvað öðruvísi en annarra? Eða eru margir siðlausir einstaklingar í stjórnmálum?

Hvernig verður fyrsta grein reglana?

Allt sem ekki er leyft í reglum þessum, er bannað.


Umferðaröryggismál og Reykjavík

Ég fletti upp á málefninu á vef Reykjavíkurborgar. Þetta kom.

Merkilegur „óvart árangur“ í Bandaríkjunum

Ný rannsókn bendir til að dauðsföll í umferðinni verði færri í ár í Bandaríkjunum en venjulega. Meginskýringin er sögð breytingar á akstursvenjum vegna metverðs á bensíni.

 

 

 

 

Sérfræðingar segja eina ástæðuna fyrir fækkun banaslysa í umferðinni þá að fólk hafi dregið mjög úr óþarfa bílnotkun, svo sem helgarferðum og kvöldrúntum sem séu áhættusamari en akstur á lítilli ferð um hábjartan dag á tepptum þjóðvegum. Að auki kemur hækkun bensínverðs verr við táninga og aldraða ökumenn en slysatíðni beggja hópa er há. Hafa þeir dregið umfram aðra hópa úr bílnotkun. Þá hefur akstur á dreifbýlis- og sveitavegum dregist ennþá meira saman en á öðrum vegum, en þar hefur slysatíðni verið hærri en á stofn- og hraðbrautum í þéttbýli. Loks hefur fjöldi ökumanna freistað þess að minnka bensínnotkun með því að aka hægar, sem hefur einnig dregið úr hættu í umferðinni.


Fíkniefni eru böl

Svo virðist að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Fíkniefni, áfengi og lyf sem hafa áhrif á taugakerfið eru viðvarandi og vaxandi vandamál þegar kemur að akstri bifreiða.

Það virðis líka vera vaxandi vandamál þessi múgsefjun sem verður á blogginu þegar svona gerist.

 Tvö vandamál sem bloggarar leysa alveg örugglega hratt.


mbl.is Ofsaakstur á skólalóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

er farið að ritskoða hverjir blogga við fréttir?

Ég get allavega ekki bloggað við frétt um útafakstur við Laugarvatn

Laugarvatn

 


Einlæg von um bata - beltin bjarga

Tvö nýleg slys sanna svo ekki verður véfengt að beltin bjarga.

Það ætti að setja lög um að ekki verði hægt að aka bifreið hraðar en 8 km/kls. nema með beltin spennt í hverju því sæti sem setið er í. Tæknin er fyrir hendi.

Þetta er sem sagt áskorun á alþingismenn að setja slík lög.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband